3 kg af sterum og 5 kg af lyfjum

Steraduftið sem hald var lagt á.
Steraduftið sem hald var lagt á. Ljósmynd/Tollstjóri

Tollstjóri lagði nýverið hald á mikið magn af sterum og lyfjum sem bárust hingað til lands með póstsendingu. Um var að ræða tæp þrjú kíló af sterum í duft- og gelformi og rúmlega fimm kíló af lyfjum, einnig í duftformi, sem reyndust vera tvær tegundir af staðdeyfilyfjum.

Sendingin barst frá Hong Kong og hafði lyfjunum og sterunum verið komið fyrir í pakkningum utan af matvælum. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fer með rannsókn þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert