Tónlistarkennarar samþykktu samning

Tónlistarkennarar létu vel í sér heyra á meðan verkfalli þeirra …
Tónlistarkennarar létu vel í sér heyra á meðan verkfalli þeirra stóð. mbl.is/Golli

Félagar í Félagi tónlistarskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn hófst 3. desember og lauk klukkan 12 í dag, 8. desember.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi: 

  • Á kjörskrá voru 530
  • Atkvæði greiddu 360 eða 67,92%
  • Já sögðu 293 eða 81,39%
  • Nei sögðu 42 eða 11,67%
  • Auðir 25 eða 6,94%

Kjarasamningur FT og Sambandsins var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara að morgni 25. nóvember síðastliðinn. Þá hafði verkfall tónlistarskólakennara staðið í nærfellt fimm vikur. Samningurinn gildir frá 1. nóvember 2014 til 31. október 2015. Hægt er að kynna sér samninginn hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert