Mannanafnefnd hefur samþykkt kvenkyns eiginnöfnin Súlamít, Bláklukka, Viglín, Lýra, Míla og Heida. Þá hefur nefndin einnig samþykkt millinafnið Hrafnfjörð. Verður þessum nöfnum bætt á mannanafnaskrá.
21. nóvember sl. samþykkti mannanafnanefnd einnig kvenkyns eiginnafnið Karol.
Þar á undan lagði hún blessun sína yfir eiginnafnið Eldþóra, millinafnið Skjöld og föðurkenninguna Franksdóttir. Þá voru karlmannsnöfnin Brímir og Rex samþykkt í október sl. og kvenmannsnöfnin Selena, Lilly og Angelía.