Vill koma á jafnrétti í Andabæ

Eftir að hafa komið auga á ýmislegt sem betur mætti fara í jafnréttismálum í Andabæ ákvað hin níu ára gamla María Hjörvar að setja saman bréf stílað á útgefanda Andrésblaðanna þar sem hún fer fram á að á þar verði gerð bót á.

Bréfið hefur farið eins og eldur í sinu um netið og í gær barst Maríu svar frá Eddu útgáfu þar sem tekið er undir athugasemdir Maríu og því er lofað að skilaboðunum verði komið áfram til samstarfsaðila Eddu erlendis.

María á ekki langt að sækja viljann til að láta að sér kveða en hún er dóttir Helga Hjörvars, þingmanns Samylkingarinnar. mbl.is ræddi við Maríu fyrr í dag þar sem hún fór yfir nokkur atriði sem henni finnst ekki endurspegla eðlileg kynhlutverk í Andabæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert