Konfekt og kaffi hækkað í verði

Wikipedia.

Verð á jólamat hefur hækkað nokkuð í verði síðan í desember á síðasta ári í flestum verslunum samkvæmt fréttatilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands sem er byggð á verðlagskönnunum sambandsins. Þó megi finn allnokkur dæmi um verðlækkanir. Þannig hafi verslanirnar Bónus, Víðir og Samkaup-Úrval frekar lækkað verð en hækkað. Hjá Nettó, Iceland og Fjarðarkaup hafi verð hins vegar frekar hækkað en lækkað.

Fram kemur að 135 gr. Nóa konfektkassi hafi hækkað töluvert í verði síðan í desember 2013. Mesta hækkunin sé hjá Fjarðarkaupum eða um 30%. Hækkunin er 20% hjá Samkaupum-Úrvali, 16% hjá Iceland, 12% hjá Nettó og Krónunni, 6% hjá Hagkaupum og 5% hjá Bónus. Nóa konfektið hefur hins vegar lækkað í verði um 1% hjá Nóatúni og 5% hjá Víði. Þá hefur 520 gr. konfektkassi hækkað um allt að 33% og 1 kg. askjan hefur hækkað um allt að 31%.

Ekki hefur aðeins orðið hækkun á konfekti frá Nói-Síríus að sögn ASÍ. Þannig hefur verðið á 460 gr. Lindu konfektkassa einnig hækkað. Mesta hækkunin er um 36% hjá Nettó, 27% hjá Fjarðarkaupum, 19% hjá Nóatúni, 15% hjá Bónus, 12% hjá Iceland og 1% hjá Krónunni. Lindu konfektið er hins vegar á sama verði og fyrra hjá Samkaupum-Úrvali en hefur lækkað í verði um 4% hjá Hagkaupum.

Einnig hefur jólakaffið frá Kaffitár hækkað. Hækkunin er 29% hjá Krónunni, 27% hjá Nettó, 26% hjá Fjarðarkaupum, 22% hjá Víði, 15% hjá Hagkaupum og 10% hjá Samkaupum-Úrvali. Það hefur hins vegar lækkað í verði um 10% hjá Bónus. 

Nánar á vef ASÍ

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert