Björgunarsveitin Ársæll var á ferðinni í gær líkt og margar aðrar sveitir Landsbjargar. Fjölmargir ökumenn þurftu á aðstoð að halda eftir að hafa fest sig í snjónum.
Á myndbandinu sem fylgir fréttinni má sjá björgunarsveitarmenn að störfum, slæma færð á götum höfuðborgarsvæðisins og langar raðir bíla sem siluðust áfram.
Myndbandið tók Þorsteinn Jónas Sigurbjörnsson