Rafmagnstruflanir eru á Snæfellsnesi og fór rafmagn af Ólafsvík, Hellissandi og Rifi um kl. 06:20 í morgun.
Verið er að gagnsetja díselvélar og er vinnuflokkur í Ólafsvík lagður af stað til bilanaleitar.
Rafmagnslaust er nú einnig í Miklaholts-, Eyja- og Kolbeinsstaðahrepp á Snæfellsnesi, vinnuflokkur frá Borgarnesi er lagður af stað til bilanleitar.
Þá er einnig bilun á dreiflínunni á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur.