Stal sér reiðhjóli, tölvu og rakspíra

Maðurinn stal meðal annars rakspíra.
Maðurinn stal meðal annars rakspíra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 29 ára karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað. Með brotum sínum rauf hann skilorð en hann var í desember fyrir ári dæmdur fyrir þjófnað sem og í apríl 2012.

Samkvæmt því sem kemur fram í umræddum þremur dómum stundar maðurinn það að hnupla úr verslunum; matvöru, snyrtivörum, rafmagnsvörum, tölvuleikjum, mynddiskum, tölvum, reiðhjóli og sígarettum.

Að þessu sinni var hann meðal annars dæmdur fyrir að stela Macbook Pro fartölvu að óþekktu verðmæti, spjaldtölvu að verðmæti 21.900 krónur, Mongoose Tyax 300 reiðhjóli að verðmæti 105 þúsund króna og Boss rakspíra.

Var refsing hans talin hæfileg sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ekkert kemur fram í dómnum um heimtur þýfisins og engar bótakröfur voru í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert