Verktakar undirbúa nú flutning Hverfisgötu 61 á tímabundinn geymslustað, áður en húsinu verður fundinn framtíðarstaður.
Jón Ómar Finnsson, verktaki og einn eigenda Hverfils ehf., segir niðurrif á lóðinni, sem er á horni Frakkastígs og Hverfisgötu, hafa hafist fyrir um hálfum mánuði með því að hús á baklóðinni voru fjarlægð.
Þau hús voru máluð í skrautlegum litum og komin til ára sinna. Góðkunningjar lögreglunnar höfðu þar aðsetur um tíma.