Mikil mildi þykir að ekki hafi orðið slys á fólki þegar gámur valt af flutningabifreið þegar henni var beygt af Kringlumýrarbraut yfir á Miklubraut á ellefta tímanum í morgun. Tildrög slyssins eru ókunn og lögregla var ekki komin á vettvang þegar ljósmyndin hér að ofan var tekin fyrir fáeinum mínútum.
Nokkrar tafir eru á umferð vegna atviksins en vera gámsins á veginum kemur í veg fyrir að hægt sé að nota beygjuafreinina. Gera má ráð fyrir töfum þar til gámurinn verður fjarlægður.