Einn vinningshafi á Íslandi vann rúmlega þrettán milljónir í Eurojackpot útdrætti kvöldsins. Hann var einn af fjórum vinningshöfum í sem fengu þriðja vinning.
Væntanlega mun þetta koma sér vel svona rétt fyrir jólin, en auk þess var einn vinningshafi sem fékk eina milljón á jókermiða.
Fyrsti vinningur í Eurojackpot var tæplega 2,2 milljarðar, en gekk ekki út í þetta skiptið.