Fundi í kjaradeilu Læknafélags Íslands við íslenska ríkið lauk fyrir skömmu í húsi Ríkissáttasemjara. Sá fundur hófst klukkan 14 í dag en þá lauk einmitt fundi í kjaradeilu Skurðlæknafélags Íslands sem stóð frá klukkan 11 í morgun.
Fyrir fundinn í dag sagði Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefndar Læknafélags Íslands að ljóst væri að samninganefnd ríkisins hefði ekki nægjanlegt umboð og gæti þar af leiðandi ekki boðið læknunum þá hækkun sem þeir telja ásættanlega.
Næstu samningafundir verða á mánudag. Fundað verður í kjaradeilu Læknafélagsins klukkan 14 en í kjaradeilu Skurðlæknafélagsins klukkan 16.