Sjö af hverjum tíu Íslendingum borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag á meðan 9,4% landsmanna ætla að borða hamborgarhrygg sem aðalrétt. Þeir sem styðja Framsóknarflokkinn eru líklegri en aðrir til að borða hangikjöt á jóladag en aðrir.
Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, en hún var framkvæmd dagana 9. desember til 16. desember 2014. Heildarfjöldi svarenda var 1.097 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 71,4% ætla að borða hangikjöt á jóladag, 9,4% sögðust ætla að borða hamborgarhrygg, 4,2% sögðust ætla að borða kalkún, 3,8% sögðust ætla að borða annað lambakjöt en hangikjöt og 11,1% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti, að því er MMR segir.
„Vinsældir hangikjöts virðast aukast með aldrinum. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 77,4% ætla að borða hamborgarhrygg sem aðalrétt á jóladag, borið saman við 64,9% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára).
Þeir sem styðja Framsóknarflokkinn eru líklegri en aðrir til að borða hangikjöt á jóladag en aðrir. Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja Framsóknarflokkinn sögðust 84,7% ætla að borða hangikjöt sem aðalrétt á jóladag, borið saman við 70% Pírata,“ segir í tilkynningu.