Verðbólga ekki minni í tvo áratugi

Mikil lækkun olíuverðs á þátt í lækkun verðbólgunnar.
Mikil lækkun olíuverðs á þátt í lækkun verðbólgunnar. mbl.is/Frikki

Verðbólga á 12 mánaða grundvelli mælist nú 0,8% og hefur hún ekki verið minni í um tvo áratugi.

Bankarnir og Seðlabankinn spáðu mun meiri verðbólgu undir lok þessa árs en raunin er og kemur mikil lækkun olíuverðs þar við sögu.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag væntir Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, þess að verðbólga aukist á ný á síðari hluta næsta árs. Bankinn spáir því nú að verðbólga verði um 1% fram á mitt næsta ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert