Kannabislykt fannst í bílnum

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglumenn á eftirlitsferð í nótt veittu athygli bifreið sem ekið var gegn rauðu ljósi á Reykjanesbraut.  Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru í bifreiðinni fjögur ungmenni þar af 3 undir 18 ára aldri. Kannabislykt fannst í bílnum og viðurkenndi einn farþeginn að eiga efnin. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ilkynning var send til barnaverndar vegna málsins.  Ökumaðurinn var ekki undir áhrifum fíkniefna.

Um þrjúleytið var karlmaður stöðvaður og tekinn úr umferð eftir að hafa ekið bifreið á Suðurgötu undir áhrifum kannabis samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert