Beraði kynfærin í sundlauginni

mbl.is/ÞÖK

Karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða skilorðabundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í þessum mánuði fyrir að bera kynfæri sín og strjúka þau í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ. Ennfremur til þess að greiða átta ára gamalli stúlku 200 þúsund krónur í miskabætur fyrir að særa blygðunarsemi hennar.

Fram kemur í dómsorði að maðurinn hafi tekið út getnaðarlim sinn, strokið hann og synt í sundlauginni með getnaðarlim sinn fyrir utan sundskýluna. Sjá hafi mátt á upptökum þar sem maðurinn hafi berað sig og strokið getnaðarlim sinn í dýpri enda sundlaugarinnar þar sem börn hafi verið að leik.

Ennfremur segir að þó ekki liggi fyrir gögn um afleiðingar brotsins gagnvart stúlkunni breyti það því ekki að slíkur verknaður sé ótvírætt til þess fallinn að hafa áhrif á andlega heilsu þess sem fyrir honum verði.

Dómurinn í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert