Rétt eftir kl. 18 í gærkvöldi, aðfangadagskvöld, var kona handtekin á heimili í austurborg Reykjavíkur. Hún er grunuð um ölvun við akstur og umferðaróhapp, þ.e. að hafa ekið utan í tvær bifreiðar.
Konan var vistuð i fangageymslu fyrir rannsókn málsins
Um kl. 22.15 í gærkvöldi hafði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afskipti af ökumanni þar sem hann var búinn að skemma bifreið sína í Ármúla. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur.