Gunnar snýr aftur á nýju ári

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. mynd/Árni Torfason

Bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson segist auðveldlega geta náð þyngd í léttvigtinni, en hann hafi engan áhuga á því að svelta sig. Hann segir að ánægður bardagamaður sé betri bardagamaður. Þetta kemur fram í viðtali sem breska blaðið The Telegraph birtir á vef sínum í dag.

Gunnar ræðir einnig um tapið fyrir Bandaríkjamanninum Rick Story í október en hann kveðst hafa farið vel yfir bardagann á upptöku og lært mikið Þá býst hann við því að vera aftur klár í slaginn í lok febrúar eða í byrjun mars. 

Viðtalið við Gunnar má lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert