Varð fyrir árás hóps manna

mbl.is/Hjörtur

Karlmaður varð fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur um klukkan sex í morgun samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hópur manna veittist að honum en þeir voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Maðurinn hlaut áverka í andliti og var fluttur á slysadeild til skoðunar.

Þá hafði lögreglan afskipti af tveimur ökumönnum í morgun vegna gruns um ölvunarakstur. Annars vegar á Bláfjallavegi og hins vegar í miðbær Reykjavíkur. Sá síðarnefndi var sömuleiðis grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann var án ökuréttinda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert