Hálka er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þæfingsfærð er á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi.
Vestanlands er flughált á Norðarverðu Snæfellsnesi og óveður. Þungfært og skafrenningur á Bröttubrekku annars er hálka á vel flestum vegum. Á Vestfjörðum er hálka á flestum vegum en þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og þæfingur á Þröskuldum. Flughált er á Raknadalshlíð. Ófært er á Hálfdán, þungfært á Mikladal og þæfingur á Kleifaheiði.
Á Norðvesturlandi er flughált frá Blönduósi og inn Langadal. Þæfingur og skafrenningur er á Þverárfjalli. Öxnadalsheiði er lokuð. Annars er hálka á vel flestum leiðum.
Á Norðausturlandi er ófært á Grenivíkurvegi og þungfært í Ljósavatnsskarði en mokstur stendur yfir. Þungfært er á Hólasandi, þæfingur er á Mývatnsöræfum og á milli Þórshafnar og Bakkafjarðar annars er hálka eða snjóþekja á vel flestum vegum.
Hálka eða snjóþekja er á vegum á Austur- og Suðausturlandi.