Fólksbifreið brann í íbúðarhverfi í Reykjanesbæ í nótt, en samkvæmt lögreglu á svæðinu var bifreiðin orðin alelda þegar komið var á staðinn um hálffjögur í nótt. Er hún talin ónýt, en ekki er vitað um eldsupptök.
Slökkviliðið mætti á vettvang og slökkti eldinn og er nú rannsókn í höndum lögreglu. Ekki fengust frekari fregnir að svo stöddu.