Greiðfært er orðið á höfuðborgarsvæðinu að sögn Vegagerðarinnar en flughálka víða í uppsveitum Suðurlands. Á Snæfellsnesi hefur hlánað mikið og er þess vegna hætta á að klakastykki falli úr Búlandshöfða niður á veg og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát. Á norðanverðu Snæfellsnesi er greiðfært en óveður.
Hálkublettir og óveður er á Bröttubrekku en hálka á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði. Hálka og óveður er á Laxárdalsheiði.
Flughálka er á Þröskuldum og nokkuð víða á Vestfjörðum þó eru vegir að mestu greiðfærir á láglendi.
Það er flughálka á nokkrum leiðum á Norðvesturlandi, þ.e. fyrir Vatnsnes og frá Sauðárkróki að Hofsósi en óveður við Stafá en annars hálka eða hálkublettir á velflestum leiðum. Hálkublettir og óveður er í Langadal.
Á Norðausturlandi er flughált mjög víða í Eyjafirði, í Aðaldal, í Reykjahverfi og í Öxarfirði. Þungfært er á Hólasandi, annars er hálka mjög víða á norðaustanlandi.
Hálka er á vegum á Austurlandi. Þæfingsfærð er á Hróarstunguvegi. Flughálka er á Fjarðarheiði og á helstu leiðum kringum Egilsstaði en hálka með suðausturströndinni.
Á veginum fyrir vestan Vík við Hrútafell rennur vatn yfir veg og eru vegfarendur beðnir um að sýna ýtrustu varkárni þar.