Ásmundur fór fram úr sér

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekkert tilefni til að skoða bakgrunn múslima á Íslandi í ljósi hryðjuverkanna í Frakklandi. Hugmyndir Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns endurspegli ekki viðhorf Sjálfstæðisflokksins. Bjarni segir Ásmund hafa farið fram úr sér.

Þetta kemur fram á vef RÚV.

Yfirlýsing Ásmundar, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook vakti hörð viðbrögð. Hann spurði í ljósi hryðjuverkanna í París hvort við værum örugg á Íslandi, og hvort bakgrunnur múslima á Íslandi hefði verið kannaður. 

„Mér finnst í fyrsta lagi augljóst að það er ekkert tilefni til að fara í slíka skoðun. Í öðru lagi erum við ekki samfélag sem byggir á réttarreglum sem heimila neitt slíkt og mér finnst að Ásmundur hafi farið fram úr sér. Þetta endurspeglar svo sannarlega ekki það viðhorf okkar að við eigum að byggja samfélag okkar á grundvallarmannréttindum sem þessar hugmyndir ganga þvert gegn,“ sagði Bjarni í samtali við RÚV.

Má ekki drepa sendiboðann

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert