Óskað eftir vitnum

Ljósmynd/Arekstur.is

Árekstur.is auglýsir eftir vitnum að óhappi sem átti sér stað á gatnamótum Listabrautar og Kringlu um klukkan 12:45  í dag föstudaginn 23. janúar.

Tvær bifreiðir rákust saman á gatnamótunum; annarri þeirra var ekið vestur Listabraut en hinni var beygt af Listabraut til austurs að Kringlu til norðurs.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum og geta veitt upplýsingar um stöðu umferðarljósanna þegar áreksturinn varð eru beðnir að hafa samband við starfsmenn Árekstur.is í síma 578 9090.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert