Hægt er að fara á skíði á nokkrum stöðum á landinu í dag. Þannig verður opið í Hlíðarfjalli við Akureyri til klukkan 16:00 og í Oddskarði við Reyðarfjörð til klukkan 15:00.
Ennfremur verður opið á Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar til klukkan 16:00 og sama er að segja um skíðasvæðið á Dalvík. Þá verður opið í Seljalandsdal fram eftir degi.