Vegum lokað vegna veðurs

Lokað er um Hellisheiði. Myndin er úr safni.
Lokað er um Hellisheiði. Myndin er úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lokað er um Sandskeið, Hellisheiðin, Þrengsli og Kjalarnes, eins er lokað um Mosfellsheiði en fært er um Suðurstrandarveg þar er hálka og skafrenningur, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Vaxandi SA-átt og á undan skilum verður hríð og skafrenningur um tíma fyrst suðvestanlands. Á þjóðveginum austur yfir Hellisheiði má gera ráð fyrir skafbyl og litlu skyggni þar til seint í kvöld. Á milli kl. 19 og 22 er reiknað er með vindhviðum allt að 30-35 m/s á utanverðu Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Víðast hvar hlánar síðar í kvöld og nótt með vatnsveðri upp í 300-400 metra hæð. Vakin er athygli á því að flughált verður þegar leysir og einkum á það við um vegi á vestanverðu landinu.

Lokað er um Sandskeið, Hellisheiði og Þrengsli. Hálka, hálkublettir og éljagangur er víða á Reykjanesinu. Hálka eða snjóþekja er á Suðurlandi. Óveður er undir Eyjafjöllum og lítið ferðaveður.

Hálka eða snjóþekja er á Vesturlandi, éljagangur og víða skafrenningur. Ófært er á Fróðárheiði og þungfært er á milli Arnarstapa og Fróðárheiðar. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Óveður er undir Hafnarfjalli.

Hálka, snjóþekja og éljagangur er á flestum leiðum á Vestfjörðum. Snjóþekja og éljagangur er á Þröskuldum.

Á Norður- og Austurlandi er hálka eða hálkublettir. Hálka er með Suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert