Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði og Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en snjóþekja og skafrenningur í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir er víða á Reykjanesinu. Þæfingsfærð er í Kjósarskarði. Hálka eða snjóþekja er á Suðurlandi.
Hálka eða snjóþekja er Vesturlandi en þó er ófært á Fróðárheiði. Snjóþekja og snjókoma er á Holtavörðuheiði. Snjóþekja og éljagangur er á Snæfellsnesi og á Bröttubrekku. Snjóþekja, hálka eða hálkublettir er á flestum leiðum á Vestfjörðum en þæfingsfærð er á Kleifarheiði.
Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Þæfingsfærð er á Hálsum og Hófaskarði. Hálka eða hálkublettir er á Austurlandi og með Suðausturströndinni.