Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, hefur kynnt framboðslista sína til Stúdentaráðs í ár. Vaka fagnar 80 ára afmæli sínu þann 4. febrúar næstkomandi og er félagið í meirihluta í Stúdentaráði, á 19 fulltrúa í Stúdentaráði af 27.
Í tilkynningu frá Vöku er rifjað upp að Vökuliðar hafi staðið fyrir skönnun gamalla prófa á sínum tíma, komið Félagsstofnun stúdenta á fætur árið 1968 og forritað rafrænu stúdentakortin sem allir háskólanemar nýta í dag.
„Á síðastliðnum árum hefur Vaka áorkað miklu; meðal annars opnaði Stúdentakjallarinn 1. desember 2012, nýir stúdentagarðar voru teknir í notkun árið 2013 auk þess sem Stúdentaráð höfðaði mál gegn ríkinu þegar Lánasjóður íslenskra námsmanna hugðist breyta úthlutunarreglum sínum með stuttum fyrirvara og sigraði. Árið 1990 fór Vaka í átak sem miðaði að því að slíta pólitíkina úr starfi Stúdentaráðs. Félagið er óflokkspólitískt afl og starfar einungis eftir stefnu sem miðar að því að tryggja hagsmuni þess fjölbreytta hóp einstaklinga sem sækir nám við Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningu.
Eftirfarandi eru á lista Vöku:
Félagvísindasvið:
Verkfræði- og náttúruvísindasvið:
Hugvísindasvið
Heilbrigðisvísindasvið:
Menntavísindasvið: