Sigurður Helgason, yfirmatreiðslumeistari Grillsins, varð í áttunda sæti í lokakeppni matreiðslukeppninnar Bocuse d'Or sem haldin var í Lyon en úrslitin voru kynnt rétt í þessu.
Norðmenn hrósuðu sigri, Bandaríkin urðu í öðru sæti og Svíþjóð í því þriðja en 24 matreiðslumenn kepptu um titilinn. Matreiðslumeistararnir áttu að elda franskan vatnaurriða og perluhænu ásamt meðlæti. Sigurður ásamt hjálparkokkum sínum, Rúnari Pierre Heriveaux, Hinriki Erni Lárussyni og Karli Óskari Smárasyni, skiluðu glæsilegu fati en það dugði ekki til til að heilla dómarana.
Mikill fjöldi Íslendinga var í Lyon að hvetja Sigurð áfram og minnti stuðningurinn á íþróttakappleik þar sem sungið og trallað var í stúkunni.