Það eru hálkublettir á Reykjanesbraut, Sandskeiði og Hellisheiði en hálka í Þrengslum. Hálka eða snjóþekja er víðast hvar á Suðurlandi.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja.
Á Norður- og Austurlandi er hálka eða snjóþekja á flestum vegum og sumstaðar éljagangur.
Hálka og hálkublettir eru með suðausturströndinni.