Mjög harður árekstur við Rauðavatn

mbl.is/Hjörtur

Harður tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi við Rauðavatn nú á ellefta tímanum. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins komu bílarnir úr gagnstæðum áttum. Beita þarf klippum til að ná ökumanni annarrar bifreiðarinnar út. 

Að sögn slökkviliðs er um alvarlegt umferðarslys að ræða, en einn einstaklingur sagður hafa slasast. Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraliðs er á vettvangi þessa stundina. Þá hefur verið lokað fyrir umferð á meðan aðgerðir eru í gangi.

Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert