Matarveisla í borginni næstu daga

Hin árlega matarmenningarhátíð Food and Fun hófst í dag en hún mun setja mikinn svip á borgina næstu daga. Fjölmargir erlendir matreiðslumeistarar taka að vanda þátt í Food and Fun í ár og koma álíka margir frá Bandaríkjunum og Evrópu.

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Dagur B Eggertsson, borgarstjóri, og Birkir Hólm Guðnason. framkvæmdastjóri Icelandair opnuðu hátíðina síðdegis í dag í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.

Hátíðin er nú haldin í fjórtánda sinn og erlendu gestakokkarnir munu næstu daga elda veislumáltíðir á helstu veitingastöðunum borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert