Tæplega þrítugur Íslendingur varð fyrir lest seint á þriðjudagskvöldið við Narvik í Noregi. Fjallað er um málið í norskum fjölmiðlum í gærmorgun en lögreglan greindi frá slysinu á Twitter.
Utanríkisráðuneytið hefur staðfest í samtali við mbl.is að um Íslending sé að ræða en upplýsir ekki frekar um slysið.
Á Twitter síðu lögreglunnar í Midtre Hålogaland kemur fram að lestin hafi ekið yfir manninn klukkan 23:07 skammt frá bænum Narvik.
NARVIK. Kl 2307 varslet togleder i Narvik om at et malmtog hadde kjørt på en person som befant seg på toglinjen utenfor Narvik.
— Midtre Hålogaland pd (@politiMHPD) February 25, 2015