Sjö skjálftar við Öskju

Rúmlega tugur skjálfta mældist í Bárðarbungu síðan í gærmorgun.  Allir skjálftarnir voru minni en 1,4 að stærð.  Í kvikuganginum mældist einnig rúmlega 10 skjálftar og voru allir minni en 1,4 stig. 

Tveir skjálftar voru við Tungnafellsjökul, sá stærri 1,7 stig.

Við Öskju mældust 7 skjálftar, sá stærsti 2,3 að stærð kl. 05:42 í nótt.  Við Herðubreið voru
um 3 skjálftar, allir minni en 2 að stærð, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert