Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og Sandskeiði en hálkublettir í Þrengslum og hálka á Lyngdalsheiði. Á Suðurlandi er víða nokkur hálka eða hálkublettir. Þæfingsfærð er frá Hvolsvelli að Vík.
Á Vesturlandi er mikið autt á láglendi eða aðeins með hálkublettum en hálka er hins vegar á flestum fjallvegum.
Hálka eða þæfingsfærð er á flestum leiðum á Vestfjörðum en ófært á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum og verið að moka.
Á Norðurlandi eru hálkublettir eða snjóþekja þó er þæfingsfærð á Þverárfjalli, Grenivíkurvegi og Brekknaheiði. Þungfært og skafrenningur er á Hófaskarði. Hálka og skafrenningur er á Vatnsskarði. Enn er verið að kanna ástand á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Á Austurlandi er víðast nokkur hálka eða snjóþekja. Snjóþekja er á Fagradal og Oddsskarði en hálka og éljagangur á Fjarðarheiði.
Með suðausturströndinni er að mestu greiðfært frá Hvalnesi að Öræfum en annars hálka eða hálkublettir og sumstaðar éljagangur.