Hælisleitendurnir enn á landinu

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Hæl­is­leit­end­urn­ir tveir sem Hæstirétt­ur hafnaði að úr­sk­urða í gæslu­v­arðhald í síðustu viku eru enn á landinu. Þetta staðfestir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins í samtali við mbl.is. Til stendur að senda mennina til Danmerkur en þangað til eru þeir undir eftirliti lögreglu.

Eins og fram hefur komið í fyrri fréttum hafnaði Hæstiréttur gæslu­v­arðhalds­kröfu lög­reglu yfir tveim­ur hæl­is­leit­end­um sem hún taldi hættu stafa af. Ann­ar þeirra hótaði meðal ann­ars ofbeld­is­verk­um og lýsti aðdáun á öfga­sam­tök­un­um Íslamska rík­inu. Gæslu­v­arðhalds­kröf­unni var hafnað þar sem lög­regl­an hafði ekki látið reyna á væg­ari aðgerðir áður eins og að gera mönn­un­um að halda sig á af­mörkuðu svæði eins og heim­ild er til sam­kvæmt út­lend­inga­lög­um.

Í samtali við mbl.is í síðustu viku staðfesti Jón að mennirnir væru í húsnæði og fæði á vegum íslenskra yfirvalda. Sagði hann jafnframt að mennirnir yrðu sendir til Danmerkur og fluttir þangað á grundvelli Dyflinnarsamningsins.

Fyrri fréttir mbl.is:

Verða framseldir á næstu dögum

Óheppilegt að þeir gangi lausir

Hælisleitandi fylgjandi IS

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert