Strætó hefur sett í loftið nýja útgáfu af appi sínu sem gerir farþegum kleift að borga í Strætó með debetkortum auk kreditkorta. Nýja þjónustan er unnin í samvinnu við Borgun.
Strætóappinu hefur verið vel tekið, segir í fréttatilkynningu, og hafa selst hátt í 50.000 snjallmiðar þá þrjá mánuði sem það hefur verið loftinu. Fólki með erlend símanúmer var gert kleift að borga í strætó með sömu uppfærslu auk þess sem sala á tímabilskortum á appinu er komin í þróun, og er þeirrar uppfærslu að vænta þegar á þessu ári, segir í tilkynningunni.
Nýja útgáfan er aðgengileg fyrir Android tæki og er í hefðbundnu samþykktarferli í App-store.