Lið Ölfuss bar í kvöld sigur úr býtum í viðureign liðsins við Stykkishólm í spurningakeppninni Útsvar á RÚV.
Hlaut Ölfus 79 stig gegn 53 stigum Stykkishólms. Er lið Ölfuss þar með komið í átta liða úrslit keppninnar þar sem það mætir liði Seltjarnarnesbæjar næsta föstudag.
Viðureignir í átta liða úrslitum:
Seltjarnarnes - Ölfus
Akureyri - Skagafjörður
Reykjavík - Reykjanesbær
Hafnarfjörður - Fljótdalshérað