„Afturhvarf mörg ár aftur í tímann“

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Af vef Bæjarins besta

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar telur ástandið á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, þar sem ekki er boðið upp á ómskoðanir vegna meðgöngueftirlits, sé óásættanlegt með öllu og afturhvarf mörg ár aftur í tímann. 

Eins og mbl.is hefur greint frá hafa ófrísk­ar kon­ur á Vest­fjörðum ekki kom­ist í ómskoðun á Heil­brigðis­stofn­un Vest­fjarða á Ísaf­irði síðan í nóv­em­ber. Ástæðan er sú að ljós­móðir sem venju­lega hef­ur komið þangað tvisvar í mánuði til að ómskoða barns­haf­andi kon­ur hef­ur ekki kom­ist vegna veðurs.

Í ályktun sem Daníel Jakobsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, lagði fram og var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar fyrr í vikunni eru aðilar málsins hvattir til að leita allra leiða svo hægt verði að bjóða upp á ómskoðanir á heimaslóðum, þannig að verðandi mæður þurfi ekki að ferðast til Reykjavíkur í slíka skoðun.

Frétt mbl.is: Óviðunandi að komast ekki í sónar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert