Fátt komi í veg fyrir verkfall

Fundað verður í deilunni hjá ríkissáttasemjara á morgun.
Fundað verður í deilunni hjá ríkissáttasemjara á morgun. mbl.is/Golli

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness (VLFA), telur að fátt geti komið í veg fyrir að verkfall skelli á í byrjun aprílmánaðar. Hann segir að enga viðleitni sé að finna af hálfu Samtaka atvinnulífsins sem hafi alfarið hafnað kröfugerð Starfsgreinasambandsins (SGS)

Þetta kemur fram í pistli sem birtur er á heimasíðu VLFA.

Fram kemur, að fram komi í kröfugerð SGS að stigin verði jöfn og þétt skref í átt til þess að dagvinnulaun dugi fyrir lágmarksframfærslu. Krafan gangi út á það að lágmarkslaun verði orðin 300.000 kr. innan þriggja ára.

„Á morgun verður haldinn fundur hjá ríkissáttasemjara og það er æði margt sem bendir til þess að ef ekki fást nein svör frá Samtökum atvinnulífsins hvað kröfugerð SGS varðar þá séu meiri en minni líkur á að viðræðum verði slitið eða að lýst verði yfir árangurslausum viðræðum hjá sáttasemjara. Slíkt er forsenda fyrir því að hægt sé að hefja kosningu varðandi verkfallsaðgerðir.

Það er mat formanns Verkalýðsfélags Akraness að fátt geti komið í veg fyrir að verkfall skelli á í byrjun aprílmánaðar enda er enga viðleitni af hálfu Samtaka atvinnulífsins að finna þar sem þeir hafa alfarið hafnað kröfugerð SGS. Það verður fróðlegt að sjá hvernig fundurinn fer á morgun en eins og áður sagði mun sá fundur skýra hvort hafinn verði undirbúningur að kosningu um verkfall eða ekki,“ segir á vef VLFA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert