Meirihluti andvígur einkavæðingu ríkisfyrirtækja

Aðeins voru 13,2% fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut …
Aðeins voru 13,2% fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Landsvirkjun nú, borið saman við 19,6% í janúar 2012. mbl.is/Ómar

Meirihluti landsmanna er andvígur því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, Landsvirkjun og Ríkisútvarpinu, að því er fram kemur í nýrri könnun MMR.

Þeir sem styðja Sjálfstæðisflokkinn líklegastir til að vera fylgjandi því að einkavæða fyrirtækin þrjú. Hlutfallslega fleiri þeirra sem styðja ríkisstjórnina sögðust vilja einkavæða Ríkisútvarpið en þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina

MMR kannaði viðhorf Íslendinga til þess að ríkið seldi eignarhlut sinn í Landsbankanum, Landsvirkjun og Ríkisútvarpinu. Meirihluti var andvígur því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í fyrirtækjunum þremur.

Fram kemur í könnuninni, að af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41,5% fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Landsbankanum nú, borið saman við 45,6% í janúar 2012. 28,9% sögðust fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Ríkisútvarpinu nú, borið saman við 22,8% í janúar 2013. Aðeins voru 13,2% fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Landsvirkjun nú, borið saman við 19,6% í janúar 2012.

Þrátt fyrir að meirihluti væri andvígur einkavæðingu ríkisfyrirtækja var viðhorf breytilegt á milli hópa. Ber þar helst að nefna að hlutfallslega fleiri þeirra sem styðja ríkisstjórnina sögðust vilja einkavæða Ríkisútvarpið en þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina. Af þeim sem tóku afstöðu og styðja ríkisstjórnina sögðust 45,2% vera fylgjandi því að einkavæða Ríkisútvarpið, borið saman við 19,6% þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina.

Þegar viðhorf er skoðað eftir stuðningi við flokka vildu hlutfallslega flestir þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn einkavæða fyrirtækin þrjú. Af þeim sem tóku afstöðu og styðja Sjálfstæðisflokkinn sögðust 59,2% fylgjandi því að ríkið selji eignarhlut sinn Landsbankanum, borið saman við 18,3% Vinstri-grænna, 50,9% voru fylgjandi því að ríkið selji eignarhlut sinn í Ríkisútvarpinu, borið saman við 11,7% Vinstri-grænna og 20,3% voru fylgjandi því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsvirkjun, borið saman við 4,1% þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn.

Könnunin var framkvæmd dagana 13. til 19. febrúar 2015 og var heildarfjöldi svarenda 975 einstaklingar, 18 ára og eldri.

28,9% sögðust fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn …
28,9% sögðust fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Ríkisútvarpinu nú, borið saman við 22,8% í janúar 2013. mbl.is/Kristinn
41,5% sögðust fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn …
41,5% sögðust fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Landsbankanum nú, borið saman við 45,6% í janúar 2012. mbl.is/Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert