Sigríður í raun sigurvegarinn

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á landsfundi flokksins í gær.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, á landsfundi flokksins í gær. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Segja má að Sigríður Ingibjörg sé sigurvegari þó hún hafi tapað. Leifturárás hennar var nálægt því að heppnast. Hvort árangur hennar er vegna þess að hún er sterkur leiðtogi eða vegna mikillar óánægju með Árna Pál skal ósagt látið. Eitt er víst. Staða Samfylkingarinnar hefur ekki batnað. Í raun hefur hún versnað til muna.“

Þetta segir Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á vefsíðu sinni vegna formannskosninganna á landsfundi Samfylkingarinnar í gækvöldi þar sem Árni Páll Árnason sigraði Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur með einu atkvæði. Karl segist óska Árna Páli til hamingju þó niðurstaðan verði seint talin mikill sigur fyrir hann eða Samfylkinguna í heild.

„Að sitjandi formaður skuli vinna með minnsta mun er mikið veikleikamerki og alls ekki sú niðurstaða sem Samfylkingin þurfti á að halda, nú þegar tvö ár eru til næstu kosninga. Flokkurinn hefði þurft að koma sterkur og sameinaður út úr þessari kosningu. Árna Páls bíður erfitt verkefni. Hann þarf ekki bara að berjast við pólitíska andstæðinga, heldur andstæð öfl innan eigin flokks. Hann stendur því verr að vígi nú en fyrir flokksþingið.“

Karl Garðarsson alþingismaður.
Karl Garðarsson alþingismaður. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert