14 sagt upp á Patreksfirði

Frá fiskeldi við Patreksfjörð.
Frá fiskeldi við Patreksfjörð.

Vegna  tímabundinnar óvissu um staðsetningu nýs vinnsluhús Fjarðalax verður 14 starfsmönnum sem nú starfa við vinnslu og pökkun á Patreksfirði sagt upp frá og með næstu mánaðamótum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu þar sem segir að nýtt vinnsluhús sé nauðsynlegt vegna aukinna umsvifa Fjarðalax á Vestfjörðum.

„Vonast er til að hægt verði að bjóða þeim ný störf um leið og ljóst verður hvar starfsemin verður. Þess er vænst að það skýrist á næstu vikum,“ segir í tilkynningu félagsins.

„Starfsemi í kringum laxeldisstöðvar Fjarðalax verður áfram á Patreksfirði, Tálknafirði og Arnarfirði. Í apríl mun Fjarðalax taka í notkun nýtt skip sem notað er við vinnsluna og búið að ráða starfsmenn á það. Samhliða er verið að ganga frá samningum við þriðja aðila um þjónustu á kvíum sem mun hefja starfsemi á Vestfjörðum á næstunni. Það mun auka enn við þann mannskap og skipakost sem starfar við eldi félagsins á svæðinu.“

Í tilkynningunni segir að útlit sé fyrir að umfang laxeldis á Vestfjörðum vaxi hröðum skrefum á næstu árum. „Þessi fyrirséði vöxtur er forsenda þess að framleiðslukostnaður hérlendis verði sambærilegur við það sem samkeppnisþjóðir okkar búa almennt við.  Það er skoðun forsvarsmanna Fjarðalax að kostnaðarhagræði verði best og fyrst náð með því að aðilar sameinist um slátrun og vinnslu.  Eftir því verður leitað af hálfu Fjarðalax í tengslum við flutning á vinnslu félagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert