Sigurjón hættur sem fréttastjóri

mbl.is/Eggert

Sigurjón M. Egilsson hefur látið af starfi fréttastjóra 365 að eigin ósk. Hann hyggst einbeita sér að þætti sínum Sprengisandi á Bylgjunni auk þess sem frekari dagskrárgerð fyrir Bylgjuna verður kynnt innan tíðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365. Þar segir að samhliða þessu verði þær skipulagsbreytingar á fréttastofunni að Andri Ólafsson, Hrund Þórsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason verða aðstoðarritstjórar og Halldór Tinni Sveinsson verður þróunarstjóri.

Kristín Þorsteinsdóttir verður áfram útgefandi og aðalritstjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert