Neitaði að borga farið

mbl.is/Jim Smart

Á tólfta tímanum í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um leigubílstjóra sem var í vandræðum með farþega sem neitaði að greiða fyrir farið.

Lögreglan fór strax á vettvang og ræddi við farþegann, sem neitaði að segja til nafns og gaf heldur ekki upp kennitölu sína. Hann þvertók einnig fyrir það að hafa fengið far með leigubílnum. Maðurinn var í kjölfarið vistaður í fangageymslu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka