„Þetta var ágætur fundur sem við áttum með starfsmönnunum og við fórum bara svona yfir stöðu mála,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, en samninganefnd félagsins fundaði með félagsmönnum hjá Ríkisútvarpinu kl. 17 í dag.
Samninganefndin mun funda með samninganefnd SA hjá ríkissáttasemjara kl. 9 í fyrramálið, en engin ákvörðun var tekin um hvort gengið verði til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun á ný.
„Það var alveg svo sem aðeins rætt á fundinum en engin ákvörðun tekin um það,“ segir Kristján. „Við ætlum að fara bara inn á fundinn á morgun og meta stöðuna svo út frá því hvað gerist þar.“
Frétt: Tæknimenn RÚV funda í dag