Haldinn verður hátíðarfundur kvenna í borgarstjórn á morgun, þriðjudaginn 31. mars kl. 14:00. Fundurinn er hluti af hátíðahöldum Reykjavíkurborgar vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Þessi dagsetning varð fyrir valinu því þann 31. mars árið 1863 kaus fyrsta konan til sveitarstjórnar á Íslandi. Hún hét Vilhelmína Lever, og kaus hún til bæjarstjórnar á Akureyri.
Hátíðafundinn á morgun munu sitja 15 efstu konur í borgarstjórn, auk borgarritara sem er staðgengill borgarstjóra við þetta tilefni.
Á dagskrá fundarins eru þrjár tillögur:
Reykjavíkurborg mun standa fyrir 100 viðburðum, smáum og stórum, í tilefni þess að öld er liðin frá því að konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Með hátíðahöldunum verður minnst þess árangurs sem náðst hefur í kvenréttindabaráttunni og hvatt til jafnréttis kynja á öllum sviðum.