Nokkur hálka eða hálkublettir á eru á Suðurlandi, einkum útvegum. Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir á vegum. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Hálka er víða á Vestfjörðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum.
Á Norðurlandi er hálka á Öxnadalsheiði en hálka og skafrenningur á Víkurskarði. Nú er búið að opna Siglufjarðarveg og þar er nú þæfingur og unnið að hreinsun. Hálka og skafrenningur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og snjóþekja og skafrenningur á Vopnafjarðarheiði.
Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á vegum. Hálka og skafrenningur er á Fjarðarheiði, á Oddsskarði og á Fagradal. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Vatnsskarði eystra. Hálkublettir eru með suðausturströndinni og skafrenningur í Öræfasveit.