Drengur varð fyrir bifreið

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Ungur drengur slasaðist á fæti í umferðarslysi á Garðbraut í Garði á fjórða tímanum í dag. Drengurinn hljóp í veg fyrir bifreið og verð fyrir henni samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur til aðhlynningar en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert