Ræddu um Úkraínu og Ríki íslams

Gunnar Bragi og Jens Stoltenberg í dag.
Gunnar Bragi og Jens Stoltenberg í dag. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, funduðu í utanríkisráðuneytinu í dag en Stoltenberg er staddur í heimsókn hér á landi. Farið var yfir stöðu öryggis- og varnarmála á fundinum, meðal annars í ljósi þeirra áskorana sem aðildarríki bandalagsins standa frammi fyrir vegna stöðu mála í Úkraínu og uppgangi hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams.

„Gunnar Bragi lýsti áhyggjum af þróun mála í Úkraínu og framferði Rússlands og áréttaði í því sambandi að Ísland leggi sitt af mörkum til verkefna sem ákveðin voru á  leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í september. Íslensk stjórnvöld hafi í hyggju að efla gistiríkjastuðning sinn við loftrýmisgæslu bandalagsins á Íslandi og að borgaralegir sérfræðingar verði sendir til starfa á vegum bandalagsins. Lýsti ráðherra fullum stuðningi við framkvæmd ályktana leiðtogafundarins, m.a. um viðbragðsáætlun sem gerir ráð fyrir auknum viðbragðsflýti herafla og aukinni viðveru í austanverðri Evrópu,“ segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Þá hafi utanríkisráðherra rætt um mikilvægi þess að bregðast við auknum áhrifum hryðjuverkasamtaka á borð við Ríki íslams, bæði í Mið-Austurlöndum, Norður-Afríku og í Evrópu.

Haft er eftir Gunnari Braga að Ísland standi andspænis hraðri og ófyrirsjáanlegri þróun öryggismála í Evrópu sem minnti um margt á tíma sem taldir voru að baki. Í því ljósi sé vestræn samvinna og sterk Atlantshafstengsl lykilatriði utanríkisstefnu landsins. Gunnar Bragi og Stoltenberg lýstu á fundinum ánægju með aukið samstarf Norðurlandanna í öryggis- og varnarmálum.

„Þá lagði utanríkisráðherra áherslu á að Atlantshafsbandalagið hafi þekkingu og reynslu til að bregðast við á Norður-Atlantshafi. Í því sambandi kynnti hann drög að þjóðaröryggisstefnu Íslands sem rædd verður á Alþingi á næstu dögum en þar eru öryggishagsmunir Íslands á norðurslóðum undirstrikaðir sem og aðildin að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert